Saga LandArt
LandArt hóf göngu sína sem útgefandi Ratkorta sumarbústaða og vefsetursins sumarbustadur.is með Leigumiðlun sumarbústaða innanborðs. Síðan hefur fyrirtækið þróast í þá átt að taka að sér ýmis ráðgjafaverkefni á sviði landfræði og ferðamennsku, markaðsmál, leigumiðlun og ráðgjöf á fasteignasviði. Vilborg G Hansen er upphaflegur útgefandi Ratkorta sumarbústaða, en útgáfan hófst fyrst árið 2000 þegar hugmyndin tók þátt í "Upp úr skúffunum" á vegum Rannsóknarþjónustu Háskólans. Árið 2002 var LandArt stofnað og tók við útgáfunni allt til þess að síðasta kortið var gefið út sumarið 2004. LandArt hefur verið viðloðandi nýsköpun og þróaði ýmsa vefi og hugmyndir af vefum sem síðan hafa farið í hendur annarra. Árið 2011 er fyrirtækið enn í þróun og bætir þá við sig fasteignasölu og leigumiðlun ásamt ráðgjöf við fasteignakaupendur, ráðgjöf og þjónustu á viðskiptasviði og ferðamálasviði.
LandArt skipar úrvali af starfsfólki með menntun og reynslu á hinum ýmsu sviðum.
Eigandi LandArt ehf er Vilborg G Hansen.