LandArt fasteignasala, leigumiðlun og ráðgjöf
Það ferli að selja eða kaupa íbúð eru hjá flestum stærstu viðskipti á ævinni. Mikilvægt er að slík viðskipti fari faglega fram og vandað sé til allra vinnubragða frá því eign er tekin til sölumeðferðar, söluyfirlit samið, tilboðsgerð sem og frágangur og skjalagerð vegna uppgjörs. Við hjá LandArt fasteigna- og leigumiðlun bjóðum upp á vandaða og góða þjónustu þegar kemur að fasteignasölu sem og kaupferlinu.
Einnig bjóðum við upp á 3 leiðir þegar kemur að leigumiðlun. Það er mikilvægt að standa rétt að þegar húsnæði er sett í leigu eða tekið á leigu. Báðir aðilar öðlast réttindi og skyldur. Þetta gildir þótt leigusamningur sé ekki skriflegur eða hafi aldrei verið þinglýstur. Ef ekki er staðið rétt að innheimtu og áskorunum vegna vangoldinnar leigu getur aðili tapað riftunarrétti sínum. Ef ekki er staðið rétt að undirbúningi vegna samnings og útleigu getur aðili tapað rétti sínum til að sækja í tryggingu eða skaðabætur. Það er margt sem þarf að hafa í huga við gerð leigusamnings og rétt þarf að standa að öllu ferlinu ef réttindi eiga ekki að tapast.
|

|
Vilborg G. Hansen, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari og framkv.stjóri LandArt ehf
Gsm 895 0303 eða vilborg@landart.is
Vilborg hefur starfað við fasteignasölu síðan 2004 og lauk prófi til löggildingar fasteignasala 2007 og löggildingu leigumiðlara 2008. |
|
|
|
Ráðgjöf og samningar
Það er mikilvægt að standa rétt að þegar húsnæði er sett í leigu eða tekið á leigu. Báðir aðilar öðlast réttindi og skyldum. Þetta gildir þótt leigusamningur sé ekki skriflegur. Ef ekki er staðið rétt innheimtu og áskorunum vegna vangoldinnar leigu getur aðili tapað riftunarrétti sínum. Ef ekki er staðið rétt að undirbúningi vegna samnings og útleigu getur aðili tapað rétti sínum til að sækja í tryggingu eða skaðabætur. Það er margt sem þarf að hafa í huga við gerð leigusamnings og rétt þarf að standa að öllu ferlinu ef réttindi eiga ekki að tapast.
Ráðgjöf til leigusala / leigutaka kr. 7.000 + vsk - pantanir á radgjof@landart.is
Hægt er að fá ráðgjöf um leiguferlið, helstu réttindi og skyldur og það helsta sem leigusali/leigutaki þarf að hafa í huga. Einnig er hægt að fá aðstoð og ráðgjöf varðandi þau ýmsu álitaefni og vandræði sem upp koma á leigutímanum eins og t.d. vangoldin leiga, riftun, almenn réttindi og skyldur aðila og uppsögn.
Ráðgjöf og undirbúningar samnings fyrir leigusala. Kr. 20.000 + vsk - pantanir á radgjof@landart.is
Hægt er að fá ráðgjöf, undirbúningur og uppsetning leigusamnings þ.e. (leigusali kemur með leigutaka sjálfur). Samningur er þá prentaður í þríriti, þar af einu á löggildan pappír.
Athuga að löggiltur leigumiðlari getur ekki borið ábyrgð á samningi sem undirritaður er án áritunar hans, né heldur á því hvort farið er að ráðgjöf sem veitt er í viðtölum.
Allt leigumiðlunarferlið. Verð er sem samsvarar 1 mánaðarleigu, en þó aldrei lægra en 75.000 + vsk.
Hér er eignin tekin til leigumiðlunar, auglýst á vefsíðu eða með öðrum umsömdum hætti, leitað að réttum leigjanda, ráðgjöf til aðila og leigusamningur undirbúinn og undirritaður af löggiltur leigumiðlara. Hér er haldið í hendina á leigusala alla leið.