Ráðgjöf og samningar

Það er mikilvægt að standa rétt að þegar húsnæði er sett í leigu eða tekið á leigu.  Báðir aðilar öðlast réttindi og skyldum.  Þetta gildir þótt leigusamningur sé ekki skriflegur.  Ef ekki er staðið rétt innheimtu og áskorunum vegna vangoldinnar leigu getur aðili tapað riftunarrétti sínum.  Ef ekki er staðið rétt að undirbúningi vegna samnings og útleigu getur aðili tapað rétti sínum til að sækja í tryggingu eða skaðabætur.  Það er margt sem þarf að hafa í huga við gerð leigusamnings og rétt þarf að standa að öllu ferlinu ef réttindi eiga ekki að tapast. 

Panta skoðun á húsnæði og skráningu til leigumiðlunar

 vilborg@landart.is  gsm 895 0303

 

 



     Ráðgjöf og samningar    
    
    Vilborg G Hansen, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari
    og framkvæmdastjóri
    Sími 895 0303  eða 
vilborg@landart.is
   
    Panta viðtöl á radgjof@landart.is 
      

 

 


Ráðgjöf til leigusala / leigutaka
kr. 7.000 + vsk   

Hægt er að fá ráðgjöf um leiguferlið, helstu réttindi og skyldur og það helsta sem leigusali/leigutaki þarf að hafa í huga.  Einnig er hægt að fá aðstoð og ráðgjöf varðandi þau ýmsu álitaefni og vandræði sem upp koma á leigutímanum eins og t.d. vangoldin leiga, riftun, almenn réttindi og skyldur aðila og uppsögn.
 

Ráðgjöf og undirbúningar samnings fyrir leigusala.  Kr. 20.000 + vsk 

Hægt er að fá ráðgjöf, undirbúningur og uppsetning leigusamnings þ.e. (leigusali kemur með leigutaka sjálfur).  Samningur er þá prentaður í þríriti, þar af einu á löggildan pappír.

Athuga að löggiltur leigumiðlari getur ekki borið ábyrgð á samningi sem undirritaður er án áritunar hans, né heldur á því hvort farið er að ráðgjöf sem veitt er í viðtölum.

Allt leigumiðlunarferlið.  Verð er sem samsvarar 1 mánaðarleigu, en þó aldrei lægra en 75.000 + vsk. 

Hér er eignin tekin til leigumiðlunar, auglýst á vefsíðu eða með öðrum umsömdum hætti, leitað að réttum leigjanda, ráðgjöf til aðila og leigusamningur undirbúinn og undirritaður af löggiltur leigumiðlara.  Hér er haldið í hendina á leigusala alla leið.   

Panta skoðun á húsnæði og skráningu til leigumiðlunar

vilborg@landart.is  gsm 895 0303