Vefhönnun og vefstjórn

Internetið er orðið öflugasta markaðssetningin í dag og fyrirtæki, félagasamtök, ríki og sveitarfélög nýta sér netið í daglegum samskiptum sínum við viðskiptavini.  Verslun og samskipti aukast á netinu þvert á landamæri og því er ljóst að fyrirtæki þurfa að hafa vefi sína aðlaðandi, auðvelda í notkun og þannig hannaða að auðvelt sé að finna þar það sem leitað er að með skjótum hætti.  Staðreyndin er að ef vefurinn er ekki gegnsær og notendur finna fljótt það sem þeir leita að þá fara þeir út af vefnum og leita annað.  

LandArt tekur að sér vefhönnun í kerfinu DaCoda en kerfið er öflugt og býður upp á mikla möguleika og lausnir.  LandArt býður einnig upp á vefumsjón fyrir fyrirtæki, félagasamtök og sveitarfélög sem ekki hafa starfsfólk á lausu til að sinna uppfærslum og viðbótum á vef sínum.  Uppfærslur og hönnun efnis á vef getur tekið tíma og þekkingu á forritum sem almennt er ekki innan fyrirtækisins.  Það getur verið ákjósanlegt að fá utanaðkomandi til að sjá um slíkt.  Hafa skal í huga að vefhönnun frá grunni er tímafrek og því getur tekið tíma að koma nýjum vef út.  

Gerum tilboð í verk stór og smá.  hafið samband í síma 588 5500 eða sendið fyrirspurn á radgjöf@landart.is  

-  Vefhönnun, uppsetning og skipulag

-  Vefumsjón